28ágúst
Ég ákvað að prófa að reyna að rifja það upp hvernig var að blogga.
ég er að fara að spila á útitónleikum á morgun
og ég er að fara að semja tónlistina eftir nokkrar mínútur.
já börningóð.
hér með hefst nýtt tímabil í sögu mannkynsins.
20febrúar
Vegna eftirspurnar (einnar)
Harrípotter lestin er harrí potter lest af því að .. þúst.. 3/4. inn á milli. Draumaóramaður að keyra lest sem vildi fara inn á milli yfir í skóla almáttugra galdra þar sem að einmitt síðustu fjórar harry potter myndir hafa verið teknar upp.
En. Hann komst ekki.
ÞVÍ HARRÍ POTTER ER EKKI TIL!
feis.
En það er ekki ástæðan fyrir því að ég ákvað að blogga.
Jú þannig er það
30janúar
Það eru tvö mál sem ég vil koma á hreint áður en haldið verður lengra.
Númer eitt.
Aldrei gefa mér, né bjóðast til að gefa mér grænt te eða kalt kaffi. Báðir hlutir gefa mér alveg hræðilega illa lyktandi og verulega safaríkar og mjúkar hraðhægðir.
Númer tvö.
Eftir að hafa drukkið heilan ketil af grænu tei, sem að ég myndi telja vera allavega fjóra bolla af grænu Fékk ég mér kaffi.
Kaffið mitt varð kalt. Ég drakk það samt af því að ég átti meira á hitaeinangrandi stálbrúsa (sem ég vil þakka guði fyrir).
Rúmum klukkutíma seinna (svona í kringum fimm leitið) gat ég ekki meir. ég var alveg að fokking skíta á mig.
Ég pakkaði saman og undirbúði mig að halda heim á leið, þar sem ég bara gat ekki fundið það í hjarta mínu að fara og skíta á Kofa Tómasar frænda.
En ég var ekki viss um að ég myndi endast strætóferðina. Svo ég fletti upp á hringvöðvann, spennti rasskinnarnar og taldi einstaklingana í salnum og slumpaði á líkurnar á því að einhver þeirra þyrfti að nýta sér kamarinn á eftir mér og þar af leiðandi verða fyrir mengun.
ÉG fór og ég sá og ég kúkaði og ég skeindi og það tók svo sannarlega á taugarnar
en það var líka alveg..fjandi gott.
Allt þar til ég þurfti að sturta niður í þriðja skiptið vegna þess hve illa gekk að koma öllum helvítis klósettpappírnum niður pípurnar.
Þetta var hrikalegt að velta sér um svona í eigin skítafýlu...
Ástæðurnar hefðu þó getað verið verri... það hefði getað verið biðröð á klósettið,
eða þá að ég væri þegar búinn að kúka á mig hálfvegis og þyrfti því að skeina bæði nærbuxurnar mig sjálfan lærin og allt að neðan,
eða bara bæði atriði,
Lásinn hefði getað verið bilaður.
Eða bara allt að ofan.
Pollíanna myndi skíta á klósetti. Hún myndi líta á það sem heppni að fá að skíta á klósetti innandyra en ekki einhverstaðar í glerkassa á miðri götu.
Helvítis pollíanna.
30janúar
Til að brjóta ekki í bága við íslensku stjórnarskránna og koma þjóðarsáttum í hættu (sbr. færslu Rúnars Bergs Baugssonar, 18. Tjáningarvopn, smásagan um manninn sem bloggaði) tek ég til baka hugsanalausa staðhæfingu mína um að Sigurður Björn Teitsson, saklaus ríkisborgari, sé heilalaus fáviti. Hann er bara...hvað skal segja..ekki eins og við hin og því ber ekki að gera grín að.
Munið svo netorðin tvö!
Ekki
Dirfast...
24janúar
Ég vaknaði klukkan sex fimmtíu og ýtti á Blundur þrisvar sinnum þá hringdi mamma og spurði hvort ég væri vaknaður ég sagði já og ýtti á Blundur tvisvar í viðbót fór svo á fætur klukkan sjö tuttugu og dreif mig í föt tók allt sem ég þurfti strunsaði fram í forstofu mundi eftir gleraugunum mínum fór og náði í þau hljóp upp í Hamraborg var kominn þangað tuttugu mínútur í átta tók S2 niður í Listdansskóla fór á æfingu klukkan tuttugu mínútur yfir átta varð sveittur til hálf tíu varð svangur og svitnaði meira til tíu fór þá inn í klefa í heita sturtu sagði við Erlu þegar hún spurði mig hvort ég væri með bílpróf að ég gæti verið með bílpróf tók S2 aftur upp í Kringlu labbaði asnalega og langa leið upp í Austurver og keypti svarta tauballettskó og svartar "sokkabuxur" sem eru samt ekki með neinum sokkum og þykkar eins og þröngar buxur labbaði venjulega leið aftur niður í kringlu fór og fékk mér subway hringdi í grím spurði hvort hann vildi hittast niðrí bæ og fá sér kaffibolla borðaði subway bátinn minn fór út tók S4 niður í bæ fór út á Hverfisgötunni og labbaði niður í Gel fór þar í klippingu og borgaði fyrir það 3500 krónur hálftíma seinna fór ég á kofa tómasar frænda og hringdi í grím hitti hann þar pantaði mér kaffibolla drakk þrjá kaffibolla fórum út löbbuðum upp í kron kíktum á skó fórum svo í Ósóma og svo í Dogma og svo niður á Lækjartorg og Grímur heilsaði Dýra í sigur rós á miðri leið ég kinnkaði kolli til Jónsa sem stó þarna líka á meðan Grímur talaði við Dýra héldum áfram tókum S1 sáum mann úr spaugstofunni hann fór út hjá kringlunni ég fór í hafnafjörð sýndi mömmu ballettfötin fékk pening fyrir skóm fór og tók S1 niður í Hamraborg tók þar S2 í Smáralindina fór Kaupfélagið og kíkti á skó sá ekki neitt fór í skór.is afgreiðslukonan var of þröngvandi fór í Retro kíkti á kawasaki skó fór í söstrene grene labbaði hring og heilsaði upp á allt starfsfólkið tók við af Birgittu á meðan hún fór að reykja og hugsaði með mér hvaða skó ég ætti að kaupa Birgitta kom aftur eftir tíu mínútur ég fór í Kaupfélagið sá ekkert sérstakt fór í Skór.is sá ekkert sérstakt fór í Retro fékk að máta svarta og brúna kawasaki skó valdi svarta setti gömlu illaþefjandi og ógeðslegu skóna í kassann og fór út í kawasaki skóm fór og tók 28 niður í Hamraborg og tók svo S2 niður á Hlemm labbaði niður Laugarveginn stoppaði í efnabúð valdi efni í töskuna mína labbaði áfram áfram áfram áfram og sá loksins Dogma tók fjóra boli og mátaði keypti tvo fór í ósóma keypti sokka fór svo í gleraugnabúð að kaupa mér gler hún sagði að það kostaði 15000 og 8000 með ríkisstyrknum mínum sagði þá að ég væri bara að tékka á verði ég var ekki að tékka á verði labbaði niður að lækjartorgi tók S4 heim kom við í tíu ellefu keypti þrist fyrir mig snickers fyrir heklu tveggja lítra kók fyrir okkur bæði hugsaði með mér sjitt hvað ég er drullusvangur skokkaði heim setti pizzu í ofninn kveikti á sjónvarpinu komst að því að eina skemmtilega í sjónvarpinu var Magga og furðudýrið þáttur númer tuttugu af tuttuguogsex mundi eftir pítsunni minni fór og náði í hana hún var brennd borðaði hana samt með góðri lyst þátturinn er búinn og núna er í sjónvarpinu geðveikt fyndið og töff lag um aðalstein sem er búinn í leikskólanum en það er enginn kominn að sækja hann.
Og svo gerði ég punkt.